laugardagur, 8. desember 2007

Ne me quitte pas

Frá þeim dögum þegar ófríðu fólki var leyft að vera frægt og menn kunnu að koma fram:



Geðveikt.

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært lag, frábær söngvari, frábært myndband. Elska Jacques Brel og finnst hann gullfallegur.

Atli Sig sagði...

Þetta er awesome. Hvað varð um alla ljótu söngvarana? Ef þú ert ljótur og kannt að syngja í dag þá annaðhvort ferðu í makeover eins og Davíð Smári eða þú verður bara vinsæll á youtube eins og breski óperugaurinn.

Nafnlaus sagði...

Uppáhalds lagið mitt þegar ég var sextán ára, og kannski bara ennþá!

Unknown sagði...

Þetta sannar kenningu mína að fólk verði ljótt ef það talar of mikla frönsku.

Komdu heim, Finnur!

Nafnlaus sagði...

Mér finnst hann myndarlegur...

Nafnlaus sagði...

Ófríður eða ekki, sá sem gefur frá sér svona falleg hljóð er fallegri en allir fallegir lagleysingjar til samans. Þetta var algjör gæsahúð.

Finnur Guðmundarson Olguson sagði...

Tékkið líka á Amsterdam ef þið sjáið það.

Tryggvi hinn leikbæri sagði...

Þessi maður er kannski ekki fallegur samkvæmt stöðlum herra Íslands en hann er óneitanlega sjarmatröll og sem slíkur er hann mjög myndarlegur. Ég verð því að vera ósammála að hann sé ófríður, hann er bara afskaplega sveittur...

Unknown sagði...

Ohh.. vá! Ég fékk gæsahúð. Útlitið skiptir engu máli. Mér fannst ég skilja hann.. en samt kann ég ekkert í frönsku. Ég elska Ninu Simone, en henni tókst ekki að hrífa mig með þessu lagi eins og hann gerir þarna.
Ne me quitte pas..
Franska verður pottþétt næsta tungumál ég læri!

astarmafian sagði...

Ó plís. Þetta var svo væmið að ég ældi blóði. Svo er þessi gæi meiri tennur en maður.

Nafnlaus sagði...

ég elska kommentin hans Hjartar hérna á hestvagnsblogginu.

Unknown sagði...

Hahaha!! Æ, hvað það verður gott að hitta ykkur bráðum.

Finnur Guðmundarson Olguson sagði...

Hættið að tala við hvert annað! Það má bara tala við eiganda bloggsins á þessu kommentakerfi.

Nafnlaus sagði...

Jæja, er Jacques Brel enn það heitasta að frétta frá Fransríkinu?

kv.
einn einmana

Atli Sig sagði...

Hæ finnur, hvað segirðu gott?